
1. september 2010 | Sigþór B. Eiríksson
Lars Jacobsen og Ruud Boffin koma til West Ham
Danski hægri bakvörðurinn Lars Jacobsen og belgíski markvörðurinn Ruud Boffin gengu til liðs við West Ham skömmu áður en leikmannaglugginn lokaði í gær.
Jacobsen, sem er þrítugur að aldri kom á frjálsi sölu frá Blackburn og gerði eins árs samning. Hann er fastamður í danska landsliðinu og lék alla leikina þrjá með Dönum á HM í S-Afríku í sumar. Jacobsen hóf ferlinn í Árósum og fór þaðan til Hamburger SV í Þýskalandi og þá til FC Köbenhavn, síðan aftur til Þýskalands og nú til Nurnberg. Everton keypti hann síðan fyrir tveimur árum en lék lítið þar sökum meiðsla og fór til Blackburn fyrir ári síðan.
Ruud Boffin er 22 ára gamall Belgi og kemur frá hollenska liðinu Maastricht og gerði tveggja ára samning við West Ham eftir að hafa verið til reynslu hjá félaginu.
31. ágúst 2010 | Sigþór B. Eiríksson
Fabio Daprela seldur til Brescia
West Ham seldi í dag svissneska U-21 árs landsliðmanninn Fabio Daprela til Brescia á Ítalía. Hinn 19 ára gamli Daprela samdi til fimm ára við ítalaska liðið.
Í dag var síðasti dagurinn fyrir leikmannaskipti þar til 1.janúar n.k. Ekkert gerðist hjá West Ham, en þó er talið líklegt að West Ham fái varnarmanninn Lars Jackobsen lánaðan frá Blackburn. En það á eftir að koma í ljós. En fullyrt var að Liverpool hefði boðið í Carlton Cole og boðið Ryan Babel í skiptum, en ekkert varð úr því. Sömu sögu var að segja Scott Parker ekkert varð úr sölu hans til Tottenham. Þannig að það má segja að góður frétttirnar er að allir skástu leikmenn liðsins verða áfram hjá félaginu.
Í viðtali sem Sky fréttastofan átti við Avram Grant eftir að leikmannaglugginn lokaðist sagði hann að West Ham hefði reynst að fá nokkra leikmenn að láni en það hefði ekki gengið upp, nema þá með Lars Jockobsen ef það gengi. Hann sagði að ekkert tilboð hefði komið frá Tottenham í Scott Parker en staðfesti að Liverpool hefði sýnt Carlton Cole áhuga og Ryan Babel hefði verið nefndur í skiptum en ekkert orðið úr því. Hann sagði að ein ástæða þess að West Ham hefði ekki getað fjárfest í nýjum leikmönnum var að félagið fékk ekki fyrirgreiðslu hjá viðskiptabönkum sínum vegna fjárhagstöðu félagsins.
29. ágúst 2010 | Sigþór B. Eiríksson
Avram Grant segir að nú þurfi þolimæði
Avram Grant stjóri West Ham sagði eftir tapið gegn Manchester United í gær að stuðningsmenn West Ham þurfi að vera þolimóðir þrátt fyrir afleita byrjun á mótinu. Þeir leikmenn sem væru nýkomnir til félagsins þurfi að aðlagast og það ætti eftir að koma. Auk þess væri Tomas Hitslsperger meiddur og Victor Obinna sem kom að láni frá Inter Milanó á föstudaginn ekki elveg tilbúnir ennþá. En hann vonaðist til þess að þeir yrðu klárir gegn Chelsea eftir tvær vikur, en nú tekur við landleikjahlé um næstu helgi. Grant sagði að hann hefði verið ánægður með leik liðsins framan af og Manchester United hefði fengið fá marktækifæri þar til þeir fengu vítaspyrnuna á 33.mínútu og sagðist hann ekki vera viss um að um vítapyrnu hefði verið að ræða.
Orðrómurinn um að Scott Parker fari til Tottenham áður en leikmannaglugginn lokar á miðnætti n.k. þriðjudag hverfur ekki. Talið er að Tottenham sé tibúið til að borga 8 milljónir sterlingspunda fyrir leikmanninn. West Ham hefur boðið honum nýjan samning sem færir 75.000 sterlingspund á viku en hann er ekki búinn að skrifa undir ennþá.
Þá er orðrómur í gangi að Livrpool hafi mikinn áhuga á Carlton Cole og vilji bjóða West Ham ákveðna upphæð og val um annað hvort Ryan Babel eða Lucas upp í kaupin
Umboðsmaður hægri bakvarðarins Gay Demel, sem leikur með Hamborg sagði í morgun að West Ham hafi boðið 1.75 milljón sterlingspunda í leikmanninn. Demel er landsliðsmaður Fílabeinsstrandarinnar og er 29 ára gamall.
Avram Grant sagði að West Ham muni reyna að fá a.m.k. tvo nýja leikmenn til liðsins áður leikmannagluggin lokar á miðnætti á þriðjudag.
28. ágúst 2010 | Sigþór B. Eiríksson
Pínlegt !
Það var hreinlega pínlegt að horfa á liðið sitt West Ham vera leikið sundur og saman í nítíu mínútur af Machester United á Old Trafford í dag. Lokastaðan var 3:0 en hefði getað orðið helmingi stærri. Liðið er nú án stiga eftir þrjá leiki og er á botni úrvalsdeildarinnar og versta byrjun liðsins síðan 1977, en það ár féll liður úr deildinni. Svo gæti einnig farið nú ef liðið tekur sig ekki alvarlega saman í andlitinu. Fyrir leikinn var alveg ljóst að það varð að hafa gætur á Paul Scholes, en hannvar vart tæklaður í leiknum og gat að vild dreift sendingum sínum út um allann völl.
Það var sending frá Scholes á Ryan Giggs á 33.mínútu sem færi heimaliðinu fyrsta markið en þá braut Jonathan Spector klaufalega á Giggs og Wayne Rooney skoraði örugglega úr vítaspyrnunni. Fyrir utan markið varði Green tvisvar glæsilega í fyrri hálfleiknum frá Nani og Fletcher. Bæði skiptin eftir sendingar frá Scholes.
Manchester United gekk frá leiknum strax á 48 mínútu þegar Nani lék á tvo leikmenn West Ham og Gabbidon rann á afturendann þegar hann ætlaði að bjarga. Eftir þetta var bara spurninginn hversu mörg mörk heimamenn mundu skora. Þeir bættu bara einu marki við á 67.mínútu þegar Berbatov skoraði af öryggi með eftir fyrirgjöf frá Giggs.
Það sem eftir lifði leiks sótti Manchester United linnulítið en mörkin urðu ekki fleiri. Undir lokin hresstist West Ham örlítið og náðu smá pressu undir lokin enda Scholes farinn af leikvelli. Liðið fékk sína fyrstu hornspyrnu á 86.mínútu.
Það er virkilega erfitt að velja mann leiksins en að þessu sinni var það Kieron Dyer. Hann barðist vel þær 70 mínútur sem hann var inn á vellinum og leitaði að samherjum.
Eldra efni| 27. ágúst 2010 | Manchester United - West Ham United: Spá |
| 25. ágúst 2010 | Verður Carlton Cole seldur ? |
| 24. ágúst 2010 | Naumur sigur gegn Oxford United |
| 24. ágúst 2010 | Alessandro Diamanti seldur til Brescia |
| 23. ágúst 2010 | West Ham í viðræðum við Victor Obinna |
Eldri greinar |
17. júní 2010
West Ham byrjar keppnistímabilið á Villa Park
Það verður ekki auðveld byrjun á næsta keppnistímabili hjá West Ham. Avram Grant fer með lið sitt á Villa Park gegn Aston Villa þann 14 ágúst. Fyrsti heimaleikurinn er gegn Bolton 21 ágúst. Síðan er leikur á Old Trafford gegn Manchester United 28.ágúst og 11.september er heimaleikur gegn Chelsea. Ekki draumabyrjun.
Um jólin og áramótin á West Ham útileik gegn Fulham og síðan tvo heimaleiki gegn Everton 28 desember á Wolves á nýársdag. Lokaleikurinn verður heimaleikur gegn Sundarlend 22 maí.








0 (600) --http://www.whufc.com/